Bryndís skrifaði góða umfjöllun um Valsleikinn sem fram fór í Höllinni í gær.

Þetta var leikur sem við höfðum í hendi okkar en töpuðum. Léleg vítanýting, tuð í dómurum og skortur á yfirvegun eru einfaldlega hlutir sem er ekki hægt að leyfa sér á móti jafn sterku liði og Val. Annars var vörnin góð næstum allan leikinn og gott flæði var í sókninni á köflum. Liðið er að slípast saman og hefur vaxið mikið síðan í fyrsta leik.

Fyrsti leikurinn var fyrir viku þegar Ármenningar fóru á Selfoss að mæta FSu. Jafnræði var með liðunum fram í þriðja leikhluta en þá sigu kjúklingarnir í FSu fram úr með ótrúlegri hittni utan af velli. Leikurinn tapaðist með 27 stigum eftir vægast sagt slakan síðari hálfleik.

Á föstudaginn tók Ármann á móti KFÍ í Höllinni. KFÍ var spáð þriðja sæti deildarinnar enda með sterkan hóp leikmanna. Ármann byrjaði betur en Ísfirðingar voru aldrei langt undan. Jafnræði var með liðunum þar til í þriðja leikhluta þegar KFÍ náði 18 stiga mun eftir vægast sagt andlausan leik Ármenninga sem mættu einfaldlega ekki tilbúnir í síðari hálfleik. Þá kom 8-0 kafli hjá Ármenningum sem reif liðið upp og það saxaði jafnt og þétt á forskot Ísfirðinga. Lokafjórðungurinn var æsispennandi en úrslitum réð vítanýtingin á lokamínútu leiksins. Ísfirðingar fiskuðu afar skringilega óíþróttamannslega villu þegar 3 sekúndur voru eftir og hefðu getað jafnað og fengið boltann aftur. Þeir misnotuðu hins vegar vítin og innkastið rataði ekki á réttan stað. Fyrsti sigur Ármenninga var því í höfn. Karfan.is fjallaði um leikinn.

Reykjavíkurmeistarar í 2. deild 2007

Ármann varð á laugardag Reykjavíkurmeistari í 2. deild þegar liðið lagði Fjölni b. að velli. Fjölnismenn hengu inni í leiknum í fyrri hálfleik þar sem Ármenningar léku afar slaka vörn. Eftir þrumuræðu frá Gulla þjálfara gengu Ármenningar ákveðnir til verks í síðari hálfleik og kláruðu leikinn með 23 stiga mun. Áður hafði Ármann lagt Val b., Leikni og KKF. Þóri að velli með 20 – 40 stiga mun hvert lið og stóðu því uppi sem ótvíræðir sigurvegarar mótsins. Þótt mótið hafi aðallega verið upphitun fyrir veturinn er sigurinn engu að síður gott veganesti. Megi titlarnir verða fleiri í vetur!

(Mynd: Ingi Þór Steinþórsson, fengin af www.karfan.is/index.php?option=com_content&task=view&id =4408&Itemid=40)

KKÍ birti spá fyrir 1. deildina í dag en þar er Ármanni spáð 7. sæti.

Spáin:
1. Breiðablik
2. Valur
3. KFÍ
4. FSu
5. Haukar
6. Þór Þorlákshöfn
7. Ármann
8. Höttur
9. Þróttur Vogum
10. Reynir Sandgerði

Sjá nánar á vef KKÍ.