Maurice Ingram hefur gert samning við Ármann/Þrótt það sem eftir lifir tímabils og mun því leika með liðinu eftir áramót í seinni helmingi mótsins.

Maurice lék nú í upphafi vetrar með Stjörnunni í Iceland Express-deildinni en ákvað að hætta þar og ganga frekar til liðs við stórveldið Ármann.

Maurice spilar stöðu miðherja. Hann lék árið 2003-2004 með Í.R og var að skila 20.4 stigum að meðaltali í leik og rífa niður 13 fráköst. Það er því ljóst að hann er mikil fengur fyrir félagið. Maurice er núna í æfingabúðum fyrir komandi átök í heimalandi sínu en mætir ferskur eftir jól á parketið í Laugardalshöll.

Við bjóðum hann hjartanlega velkomin til liðsins.

Stjórn Ármanns/Þróttar ítrekar að leikmenn meistaraflokks greiði æfingagjöldin sem fyrst. Þeir leikmenn sem ekki greiða þau fá ekki leikheimild í desember og munu ekki spila fyrr en þau hafa verið greidd.

Æfingagjöldin eru aðeins 25.000 kr. fyrir veturinn og má leggja inn á:
Reikning nr. 0313-26-894
Kennitala: 450602-3450

Munið að taka fram ykkar nafn í skýringu greiðslu.

kv … Stjórnin

Æfing á morgun: Laugardag

Það er aukaæfing á morgun laugardag kl 14:00 til 15:30 í Laugardalshöll.

Allir að mæta og taka á því.

Ármann/Þróttur er úr leik í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar eftir tap á heimavelli í gær gegn Skallagrími. Ármenningar geta þó borið höfuðið hátt því þeir áttu í fullu tré við Skallagrímsmenn sem leika þó í efstu deild og eru með 3 útlendinga innanborðs. Ármann/Þróttur var með yfirhöndina í fyrri hálfleik og leiddi 27-23 að honum loknum. Um miðjan 3. leikhluta náði Skallagrímur góðum spretti, setti nokkra þrista og tók forystu sem Ármenningar náðu aldrei að brúa. Munurinn jókst síðan mikið undir lokin og niðurstaðan varð 21 stigs tap, 55-76, en þær tölur gefa mjög skakka mynd af leiknum.

Ármenningar léku hörku vörn og voru greinilega ekki með minnimáttarkennd þrátt fyrir að leika deild neðar en andstæðingarnir. Skallagrímsmenn bjuggust líklegast við auðveldri bráð en raunin varð allt önnur og þeir þurftu að leika á sínu sterkasta liði nær allan leikinn. Ármann hélt þeim í 23 stigum í fyrri hálfleik en Skallagrímur hefur ekki skorað svo fá stig í hálfleik á þessu tímabili. Í síðari hálfleik leituðu Skallagrímsmenn mikið til Darrell Flake sem Ármenningar áttu í erfiðleikum með að stöðva.

Liðsmenn Ármanns/Þróttar léku mjög vel í leiknum og liðsheildin var afar góð. Sérstaklega ber þó að nefna að Steinar Kaldal átti stjörnuleik og dreif liðið áfram með mikilli baráttusemi.

Bikarleikur í kvöld

Ármann/Þróttur mætir í kvöld á heimavelli í Laugardalshöll Skallagrími í bikarkeppni Lýsingar & KKÍ. Að því tilefni ætlar Ármann/Þróttur að leika í nýjum búningum í bikarkeppninni, ekki ósvipað og KR gerir í Evrópukeppninni, en þar sem Ármann/Þróttur er ekki í henni ennþá, er notast við Bikarkeppnina.

Skallagrímur er með feikigott lið og eru í 5.sæti í Iceland Express-deildinni með 4 sigra og 4 töp. Eins og allir vita er bikarkeppnin nýtt mót og þar getur allt gerst. Því er um að mæta í kvöld kl 19:15 og styðja við bakið á Ármanni/Þrótti.

Það er Errea á Íslandi sem styrkir Ármann/Þrótt og útvegar búninga fyrir meistarflokk karla.

Vefsíðan korfubolti.com hefur loksins verið færð í Ármannsbúning en hún var undanfarin ár netbækistöð Hvítu riddaranna. Nýja síðan var gerð af grafík-snillingnum Kidda og kóðaþrælnum Stebba og er byggð á WordPress ef einhver hefur áhuga að vita það (nei hélt ekki). Látið okkur vita ef þið hafið athugasemdir eða hugmyndir um nýtt efni.

Minnum þá sem hafa ekki greitt æfingagjöldin að gera það sem fyrst. Þau eru 25.000 kr. fyrir veturinn og má leggja inn á:
Reikning nr. 0313-26-894
Kennitala: 450602-3450

Munið að taka fram ykkar nafn í skýringu greiðslu.

Búið er að draga í bikarnum og við fengum heimaleik gegn Skallagrími.

Skallagrímur spilar vitanlega í Úrvalsdeildini og það er því útlit fyrir skemmtilega viðureign í Höllinni og stefnan er að sjálfsögðu sett á 16-liða úrslitin.