feb.
25
Um helgina voru þrír leikir í deildinni og unnu helstu keppinautar okkar um sæti í úrslitum sína leiki. KFÍ vann Hött á heimavelli örugglega og Haukar unnu Þór á útivelli með 20 stigum. KFÍ eiga einn leik inni og eru með 12 stig en Haukar hafa spilað jafn marga leiki og Ármann og eru komnir í 16 stig gegn 14 stigum Ármanns. Það er því alveg ljóst að til að komast í úrslit þarf Ármann að vinna alla leiki sína sem eftir eru. Það eru leikir við Hauka (úti), Þór (heima) og Þrótt (úti) og hefst prógrammið á miðvikudaginn gegn Haukum.
Æfingin í kvöld hefst 21:30 og mæting er stundvíslega kl 21:20.