Magnað lokahóf verður haldið föstudaginn 11.apríl í Þróttarheimilu í Laugardalnum. Það mæting um klukkan 19.00 en maturinn hefst stundvíslega klukkan 20.00. Hver og einn þarf að greiða 3000 krónur og það fer inn á reikning 0143-26-010056 og kennitalan er 290986-3899 (Elva Rut). Síðasti séns á að borga er miðvikudagurinn 9. apríl og setjið nafnið ykkar í skýringu.   
Krydd í tilveruna mun sjá um að grilla ofan í okkur og í boði er:Mexico  lambakjötBBQ svínakjötLemmon-pepper kjúklingalæri (beinlaus)Pylsur (fyrir vandláta)Meðlæti með kjötinu er síðan:Bakaðar kartöflurKartöflusalatMaísFerskt salatTvær tegundir af kaldri sósu 
Hver og einn mætir síðan með sitt eigið áfengi til þess að drekka um kvöldið 


4.sætið tryggt og sæti í úrslitakeppninni fyrir Ármann. Úrslitakeppnin hefst á morgun miðvikudag í Vodafone Höllinni kl 20:00. 
 - Myndir úr leiknum  gegn Þrótti hér -

Ármann tók stór skref í átt að úrslitakeppninni í ár með því að vinna Hauka og Þór í síðustu tveim leikjum. Báðir leikirnir töpuðust í fyrri umferðinni og því var nauðsynlegt að hefna fyrir þau tæknilegu mistök. Það hafðist og því einn leikur eftir í deildinni.Áfram Ármann