Eftir síðasta leik á síðustu leiktíð virðist það eitthvað hafa skolast til hver ætti að taka búningasettið hvíta sem við spiluðum síðasta leikinn okkar í. Því er hér með auglýst eftir því og allir leikmenn hvattir til að fara einu sinni enn yfir það hvort það leynist einhverstaðar inni í geymslu eða hvað.

Áfram Ármann!

Það er æfing á morgun laugardag í Laugardalshöll kl 11:00.

Allir að mæta á æfinguna og láta það berast til þeirra sem þið hittið á og munið að taka með boltana þeir sem eru með þá.

Æfingar Ármanns B í körfu eru í Vogaskóla á:Þriðjudögum 22:00-23:00Fimmtudögum 22:00-23:00Föstudögum 21:00-22:30

Vegna landsleik Íslands og Dana í Laugardalshöll þá er frjáls mæting á æfingu í Kennó í kvöld.  Liðsmenn eru hvattir til að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á okkar mönnum en íslenska liðið er fullskipað í kvöld og má búast við hörku leik þar sem danirnir eru með fína leikmenn innanborðs og óvenju hávaxið lið í kvöld. Með liðinu leika meðala annars Adama Darboe sem var hjá Grindavík og Sören Flæng sem mun vera með Tindastól í vetur.

Hraðmót Vals og Reebok:A riðill: Haukar, Stjarnan, ÍR, Valur2B riðill: KR, Þór Ak., Ármann, ValurLaugardagur 6. september10:00 KR – Ármann11:00 Þór Ak. -Valur12:00 Haukar – ÍR13:00 Stjarnan – Valur214:00 KR – Þór Ak.15:00 Ármann – Valur16:00 Stjarnan – ÍR17:00 Haukar – Valur2Sunnudagur 6. september11:00 KR – Valur12:00 Haukar – Stjarnan13:00 ÍR – Valur214:00 Þór Ak – Ármann16:00 úrslit – Sigurvegari A – Sigurvegari B