Ármann spilar sinn annan leik á tímabilinu annað kvöld þegar þeir taka á móti liði Hamars í Laugardalshöllinni kl 19:00 (ekki 19:15 eins og stóð í gær).

Hamar sigraði lið Laugdæla í fyrsta leik sínum en Ármann tapaði gegn Fjölni og því má búst við að Ármenningar vilji rétta sinn hlut og koma sér á skrið.

Við hvetjum alla til að mæta en í ljósi efnahagsástandsins ætla að Ármenningar að koma til móts við fjöldan og stilla miðaverði í hóf, litlar 500 kr. kostar inn og það verður sjoppa á staðnum og flatbökur í hálfleik fyrir þá sem vilja styrkja liðið og nærast um leið.

Mætum á fyrsta heimaleik vetrarins og skemmtum okkur yfir góðum körfuboltaleik!

Fyrsti leikur ársins

Í kvöld hefst leiktíðinn hjá Ármanni með fyrsta leik tímabilsins en Ármenningar fara upp í Grafarvog og leika við Fjölnismenn kl 19:15.

Scooter Sherrill er komin með leikheimild eins og allir hinir íslensku leikmennirnir sem hafa gengið til liðs við Ármann á þessu ári og því má búast við skemmtilegum leik enda ætla bæði lið sér að gera vel í vetur. Bæði lið eru vel mönnuð og með öfluga og skemmtilega leikmenn í sínum röðum.

Við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á Ármanni.

Sælir liðsmenn. Athugið að það verða tvær aukaæfingar um helgina:

Laugardaginn í Kennó: kl 11-12 
Sunnudaginn í Kennó : kl 12-13:30

120 ára afmæli Ármanns

Í tilefni af 120 ára afmæli Glímufélags Ármanns, verður efnt til hátíðarhalda laugardaginn 11. október. Þau fara fram í Laugabóli, nýju íþróttahúsi Ármanns og Þróttar í Laugardal. Dagskráin er tvískipt:

Fjölskylduskemmtun:
14:30-14:45 Í fimleikasal Laugabóls, býður Snorri Þorvaldsson formaður Ármanns gesti velkomna.
14:45-15:45 Sýningaatriði, þar sem deildir félagsins verða kynntar.
15:45-16:15 Heiðursveitingar félagsins og sérsambanda.
16:15-17:30 Kaffi og afmælisterta í Skelli, bardagasal félagsins.
Gestum boðið að skoða Laugaból. Myndasýning verður í húsinu.
Kvöldskemmtun:
Um kvöldið hefjast hátíðarhöldin kl. 19:30. Við Ármenningar og gestir ætlum þá að skemmta okkur saman í hátíðarsal hússins.

Boðið verður upp á léttan mat og drykki, tónlist og skemmtiatriði. 
Verð aðgöngumiða á kvöldskemmtun er kr. 3500.- Léttvín í boðinu með veitingum til kl. 21:30, en eftir það verður barinn opinn.

Miða má panta hjá afmælisnefnarformanni, Kristínu Ólafsdóttur, stinaola[at]hi.is fyrir 8. okt.

Ath. að miðafjöldinn er takmarkaður og aldurstakmark 18 ára. 

Stjórn Ármanns.