okt.
15
15
Ármann spilar sinn annan leik á tímabilinu annað kvöld þegar þeir taka á móti liði Hamars í Laugardalshöllinni kl 19:00 (ekki 19:15 eins og stóð í gær).
Hamar sigraði lið Laugdæla í fyrsta leik sínum en Ármann tapaði gegn Fjölni og því má búst við að Ármenningar vilji rétta sinn hlut og koma sér á skrið.
Við hvetjum alla til að mæta en í ljósi efnahagsástandsins ætla að Ármenningar að koma til móts við fjöldan og stilla miðaverði í hóf, litlar 500 kr. kostar inn og það verður sjoppa á staðnum og flatbökur í hálfleik fyrir þá sem vilja styrkja liðið og nærast um leið.
Mætum á fyrsta heimaleik vetrarins og skemmtum okkur yfir góðum körfuboltaleik!



sjoppa og alles
djöfull líst mér vel á þetta
hvernig getur maður sem hefur áhuga að kíkja á æfingu í körfabolta komist af því hvar og hvenær?? í drengjaflokki?