Eftir síðasta leik á síðustu leiktíð virðist það eitthvað hafa skolast til hver ætti að taka búningasettið hvíta sem við spiluðum síðasta leikinn okkar í. Því er hér með auglýst eftir því og allir leikmenn hvattir til að fara einu sinni enn yfir það hvort það leynist einhverstaðar inni í geymslu eða hvað.

Áfram Ármann!

Það er æfing á morgun laugardag í Laugardalshöll kl 11:00.

Allir að mæta á æfinguna og láta það berast til þeirra sem þið hittið á og munið að taka með boltana þeir sem eru með þá.

Æfingar Ármanns B í körfu eru í Vogaskóla á:Þriðjudögum 22:00-23:00Fimmtudögum 22:00-23:00Föstudögum 21:00-22:30

Vegna landsleik Íslands og Dana í Laugardalshöll þá er frjáls mæting á æfingu í Kennó í kvöld.  Liðsmenn eru hvattir til að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á okkar mönnum en íslenska liðið er fullskipað í kvöld og má búast við hörku leik þar sem danirnir eru með fína leikmenn innanborðs og óvenju hávaxið lið í kvöld. Með liðinu leika meðala annars Adama Darboe sem var hjá Grindavík og Sören Flæng sem mun vera með Tindastól í vetur.

Hraðmót Vals og Reebok:A riðill: Haukar, Stjarnan, ÍR, Valur2B riðill: KR, Þór Ak., Ármann, ValurLaugardagur 6. september10:00 KR – Ármann11:00 Þór Ak. -Valur12:00 Haukar – ÍR13:00 Stjarnan – Valur214:00 KR – Þór Ak.15:00 Ármann – Valur16:00 Stjarnan – ÍR17:00 Haukar – Valur2Sunnudagur 6. september11:00 KR – Valur12:00 Haukar – Stjarnan13:00 ÍR – Valur214:00 Þór Ak – Ármann16:00 úrslit – Sigurvegari A – Sigurvegari B

Magnað lokahóf verður haldið föstudaginn 11.apríl í Þróttarheimilu í Laugardalnum. Það mæting um klukkan 19.00 en maturinn hefst stundvíslega klukkan 20.00. Hver og einn þarf að greiða 3000 krónur og það fer inn á reikning 0143-26-010056 og kennitalan er 290986-3899 (Elva Rut). Síðasti séns á að borga er miðvikudagurinn 9. apríl og setjið nafnið ykkar í skýringu.   
Krydd í tilveruna mun sjá um að grilla ofan í okkur og í boði er:Mexico  lambakjötBBQ svínakjötLemmon-pepper kjúklingalæri (beinlaus)Pylsur (fyrir vandláta)Meðlæti með kjötinu er síðan:Bakaðar kartöflurKartöflusalatMaísFerskt salatTvær tegundir af kaldri sósu 
Hver og einn mætir síðan með sitt eigið áfengi til þess að drekka um kvöldið 


4.sætið tryggt og sæti í úrslitakeppninni fyrir Ármann. Úrslitakeppnin hefst á morgun miðvikudag í Vodafone Höllinni kl 20:00. 
 - Myndir úr leiknum  gegn Þrótti hér -

Ármann tók stór skref í átt að úrslitakeppninni í ár með því að vinna Hauka og Þór í síðustu tveim leikjum. Báðir leikirnir töpuðust í fyrri umferðinni og því var nauðsynlegt að hefna fyrir þau tæknilegu mistök. Það hafðist og því einn leikur eftir í deildinni.Áfram Ármann 

Hann Lucien Boland félagi okkar í Ármanni tók rúmlega 100 myndir á leiknum gegn Reyni sem fór 122-82 fyrir Ármanni en leikurinn fór fram 19. feb síðastliðin í Laugardalshöll. 


Update: myndirnar hafa vikið fyrir öðrum nýrri. Hægt er að hafa samband við Ármann til að kaupa eintak til framköllunar.

Um helgina voru þrír leikir í deildinni og unnu helstu keppinautar okkar um sæti í úrslitum sína leiki. KFÍ vann Hött á heimavelli örugglega og Haukar unnu Þór á útivelli með 20 stigum. KFÍ eiga einn leik inni og eru með 12 stig en Haukar hafa spilað jafn marga leiki og Ármann og eru komnir í 16 stig gegn 14 stigum Ármanns. Það er því alveg ljóst að til að komast í úrslit þarf Ármann að vinna alla leiki sína sem eftir eru. Það eru leikir við Hauka (úti), Þór (heima) og Þrótt (úti) og hefst prógrammið á miðvikudaginn gegn Haukum. 
Æfingin í kvöld hefst 21:30 og mæting er stundvíslega kl 21:20.